![]() |
||||||||
Hótel Djúpavík Hafið samband og bókanir Álfasteinn – sumarhús Lækjarkot Gestabók Gamla Síldarverksmiðjan Hvað hægt er að gera Verð 2012 Leiðin/landakort Myndir - - - - - - - - - - - Tenglar Vinir og uppáhalds Um vefinn |
Hótel Djúpavík Hótel Djúpavík er staðsett í stórbrotnu landslagi við botn Reykjarfjarðar á Ströndum. Djúpavík er u.þ.b. 75 km norðan við Hólmavík (sjá leiðarlýsingu hér).
Við bjóðum upp á morgunverðarhlaðborð og kvöldmat í matsal sem er mjög sérstakur
og fallegur. Kaffi, te, brauð og kökur eru á boðstólum yfir daginn, ásamt léttum veitingum í hádeginu. Hótel Djúpavík er opið allt árið um kring.
Húsið sem nú er Hótel Djúpavík var byggt á 3ja áratug síðustu aldar fyrir konur sem unnu á söltunarplaninu við söltun síldar. Þá kallaðist það Kvennabragginn. Það var síðan gert upp árið 1985 og það sumar komu síðan fyrstu gestirnir á hótelið. Ýmis konar afþreying er í boði í nágrenni hótelsins. Þú getur farið í skemmtilega leiðsöguferð í gegnum gömlu síldarverksmiðjuna og skoðað þar Sögusýningu Djúpavíkur. Farið í frábæra útsýnisferð (Djúpavíkurhringinn) upp á hamrana fyrir ofan þorpið eða heimsótt sérstæðustu sundlaug á Íslandi sem hituð er upp með sjálfrennandi vatni frá heitum hverum. Afþreyingar síðan okkar gefur nánari upplýsingar.
Myndasafnið okkar inniheldur mikið af ljósmyndum af hótelinu og umhverfi þess. Smellið hér til að sjá nýjasta verðlistann okkar. |
|||||||